
Beitningartrektin er framleidd úr ryðfríu stáli. Hún er tvöföld og er yfileitt staðsett aftan á bátnum. Beitunnni er helt í sílóið og þar fara krókarnir í gegn og grípa hana á leiðinni út úr bátnum. Stífir burstar mynda skot á krókinn til að festa beituna betur á.
Trektin beitir mjög vel t.d. smokkfisk, síld, makríl og kúskel, en einning beitist fersk loðna mjög vel.
Sjálf línan fer aldrei í gegnum beituna einungis krókarnir, renna þeir í gegnum beituna og grípa bita um leið og línan rennur út. Engin vélbúnaður er fyrir beitningartrektina hún er einungis keyrð á hraða bátsins.
Hún er mjög einföld í upsetningu og notkun, og hefur beitningartrektin valdið byltingu í línuútgerð smábáta á undanförnum árum.