
RAFMAGNSHNÍFUR
Beituskurðarhnífurinn er framleiddur úr ryðfríu stáli, hann er keyrður með 3 kw mótor, í honum eru 18 - 20 200 m/m skurðarblöð. Algengasta beitustærðin er 13 m/m til 16 m/m. Hnífurinn er framleiddur eftir óskum viðskiptavinarins. þessi öflugi hnífur getur auðveldlega skorið beituna hálffrosna.

GLUSSAHNÍFUR
Glussahnífurinn er einnig mjög öflugur, hann er staðsettur um borð í bátnum, og tengdur við glussakerfi hans. Hann er einnig með 18 - 20 200m/m blöð og framleiddur eftir óskum viðskiptavinarinns. Hann getur einnig auðveldlega skorið beituna hálffrosna. Smellið hér til að skoða fleiri myndir af glussahnífnum.