Beitir.is - Línuspil







    Línuspil



BS-210
Fyrir báta sem eru 8 til 20 metrar. Línuspilið er framleitt úr ryðfríu stáli, það er sambyggt með bæði halara og slítara. Línan er dregin inn á stóru kefli og í gegnum slítarann. Línan heldur áfram í gegnum burstana sem hreinsa gamla beitu af krókunum. Síðan heldur línan áfram að línuhjólinu sem leiðir línuna að línuskífunni. Þaðan hringast línan niður í línupokann. Á þessu spili er Parker Rótor 198



BS-204s
Þetta línuspil er ætlað fyrir stærri báta sem róa með handbeitta línu. Línuspilið er framleitt úr ryðfríu stáli, það er sambyggt með bæði halara og slítara. Línan er dregin inn á stóru kefli og í gegnum slítarann. Línan heldur áfram í gegnum burstana sem hreinsa gamla beitu af krókunum. Síðan heldur línan áfram að línuhjólinu sem leiðir línuna að línuskífunni. Þaðan hringast línan niður í línupokann. Á þessu spili er Parker Rótor 241



BS-230s
Þetta línuspil er sérstaklega ætlað fyrir beitningarvélabáta þar sem uppstokkun fer fram um borð. Línuspilið er framleitt úr ryðfríu stáli, það er sambyggt með bæði halara og slítara. Línan er dregin inn á stóru kefli og í gegnum slítarann. Línan heldur áfram í gegnum burstana sem hreinsa gamla beitu af krókunum, þarna er þreföld glussadrifin glussapressa. Síðan heldur línan áfram að línuhjólinu sem leiðir línuna að línuskífunni. Þaðan fer línan að uppstokkara. Á þessu spili er Parker Rótor 241