Beitir.is - Um Beitir







    Um Beitir

Fyrirtækið Beitir var stofnað árið 1988 og er staðsett í Vogum á Vatnsleysuströnd. Það smíðar flest tæki úr ryðfríu stáli fyrir fiskvinnslu- og matvælaiðnað.
Beitir er best þekkt fyrir framleiðslu á beitningartrektum, línuspilum og beituskurðarhnífum fyrir 6 til 100 tonna báta.

Beitir hefur einnig tekið að sér stærri verk svo sem færibönd, fiskþvottakör og ýmsan annan búnað úr ryðríu stáli fyrir mörg frystihús, skip og matvælafyrirtæki.

Eigendur Beitis eru hjónin Hafsteinn Ólafsson og Þóra Bragadóttir

Beitir ehf.
Jónsvör 3
190 Vogar
kt. 550605-1200
banki: 1109-26-9719

Sími: 424-6650
Fax: 884-2845
netfang: beitir@beitir.is